Skilmálar

Sendingarskilmálar
Allar pantanir eru afgreiddar eins fljótt og unnt er. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband.

Um allar sendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um dreifingu og afhendingu. Skilmála Póstsins má nálgast hér: https://posturinn.is/posturinn/upplysingar/vidskiptaskilmalar

Allar vörur eru brotatryggðar hjá póstinum. Art postulin tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð.

Endurgreiðsluskilmálar
Sé vara gölluð ber að hafa samband sem fyrst í gegnum netfangið kedda@simnet.is og við bætum fyrir vöruna með nýrri vöru eða endurgreiðslu.

Skila- og skiptiskilmálar
Vörunni er hægt að skila eða skipta innan 14 daga og fá skipt í aðra vöru eða endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óopnuð, í upprunalegum umbúðum.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.

Vörum er hægt að skila með pósti til:
Art postulin, Austurtún 8, 225 Álftanes.

Gott er að láta vita af vöruskilum með því að senda póst á kedda@simnet.is.

Lög og varnarþing
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara skilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.